Handbók um móttöku skemmtiferðaskipa á Reykjanesi - Cruise Ready
- Vinnustofa og rýnifundur
Haldinn í Stapa, Hljómahöll, mánudaginn 18. mars kl. 13.30-15.45.
Markaðsstofa Reykjaness í samvinnu við AECO hafa unnið að gerð handbókar fyrir hagsmunaaðila á Reykjanesi, um móttöku skemmtiferðaskipa undanfarið ár. Stefnt er að því að hún verði tilbúin í vor og er því kallað eftir aðkomu allra hagsmunaaðila að rýna í handbókina saman þannig að hún komi til með að nýtast í framhaldinu til að stuðla að tækifærum til vöruþróunar á svæðinu en ekki síður til virðisauka fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á svæðinu.
Handbókin er skrifuð á ensku, en verður þýdd yfir á íslensku í framhaldi fundarins. Vinnufundurinn verður á íslensku.
Dagskrá Cruise Ready Reykjanes
- Opnun vinnustofu og stefna áfangastaðarins - Þuríður Aradóttir Braun, forstöðukona Markaðsstofu Reykjaness
- Cruise Ready - kynning á handbókinni, Gyða Guðmundsdóttir, leiðtogi samfélagsverkefna hjá AECO
- Kynning frá Reykjaneshöfnum og Grindavíkurhöfn
- Vinnustofa og hópavinna
- Samantekt og næstu skref. Markaðsstofa Reykjaness og AECO
Skráðir þátttakendur á vinnustofuna fá senda handbókina til yfirlestrar við skráningu á fundinn.
Skráðu þig á vinnustofuna hér!