Drónar - upplýsingar
Reglur um flug dróna á gossvæðinu sem settar eru til þess að tryggja öryggi.
- Ekki má fljúga dróna hærra en 120 metra yfir jörðu
- Drónar skulu ávallt víkja fyrir mönnuðum loftförum
- Ekki má fljúga dróna utan sjónarsviðs stjórnanda hans
- Umráðandi dróna ber ávallt ábyrgð á því tjóni sem kann að hljótast af notkun hans
- Til dróna í atvinnuskyni eru gerðar frekari kröfur, til dæmis skráning
Hægt er að kynna sér betur reglur um dróna á vef Samgöngustofu.