Markaðsstofa Reykjaness leitar að nemendum í sumarstarf
Sumarstarf
Við leitum af teymi tveggja nemenda til að vinna að verkefni fyrir Markaðsstofu Reykjaness. Teymið þarf að vera skipað annars vegar nemenda í arkitektúr og hins vegar listum, hönnun eða menningarmiðlun.
Um er að ræða verkefni sem stendur yfir í tvo mánuði á tímabilinu júní-ágúst 2023.
Verkefnið miðar að því að:
- Kortleggja útilistaverk og áhugaverðan arkitektúr.
- Safna upplýsingum og þekkingu á menningarverðmætum sem liggja í útilistaverkum og byggingarlist á Suðurnesjum.
- Velja úr og vinna upplýsingar til miðlunar út frá því efni sem er safnað inná vefinn visitreykjanes.is.
- Í lok tímabilsins skila nemendur skýrslu yfir öll útilistaverk á svæðinu og áhugaverðan arkitektúr.
Hæfni nemenda:
- Nemandi í arkitektúr, hönnun, listum eða menningarmiðlun
- Sjálfstæð/ur í vinnu
- Með bílpróf
- Þarf að hafa gott vald á íslensku og ensku
Nemendur hafa aðgang að skrifstofurými hjá Markaðsstofu Reykjaness á meðan á verkefninu stendur.
Umsjónaraðili verkefnisins er Þuríður Aradóttir Braun hjá Markaðsstofu Reykjaness, auk ráðgjafa hjá Hönnunarmiðstöð og Arkitektafélagsins. Frekari upplýsingar má nálgast hjá umsjónaraðila verkefnisins thura@visitreykjanes.is.
Umsóknir skal senda á netfangið thura@visitreykjanes.is með ferilskrá og kynningarbréfi, fyrir 8. maí n.k.
Verkefnið er stutt af Nýsköpunarsjóði námsmanna og Uppbyggingasjóði Suðurnesja.