Eldgosi lokið, enn skjálftavirkni og opið inn í Grindavík
Lokunarsvæði minnkar í kjölfar lækkunar á neyðarstigi - Opnað inn í Grindavík
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum í samráði við Ríkislögreglustjóra hafa fært viðbúnaðarstig vegna eldgoss við Sundhnúksgíga niður í hættustig. Með þeirri ákvörðun hefur lokunasvæðið jafnframt verið minnkað og lokunarpóstar færðir í fyrra horf að mestu.
Eldgosinu er lokið, en ennþá mælast skjálftar á Sundhnúksgígaröðinni. Vegna þessa er lokað inn í Grindavík fyrir almenning og að gossvæðinu. Mikilvægt að gestir hafi í huga mögulega gasmengun frá eldgosinu á meðan það stendur yfir. Hægt er að fylgjast með vindátt á svæðinu á vef Veðurstofunnar.
Lokunarpóstur á Grindavíkurvegi - Bláa lónið opið
Á þriðjudag var opnað á aðgengi inn í Svartsengi, þar á meðal Bláa lónið og Northern light Inn. Lokunarpóstur á Grindavíkurvegi hefur nú verið fjarlægður og búið að opna inn í Grindavík. Verið er að vinna í uppsetningu á útsýnisstað á gamla Grindavíkurveginum. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er aðgengi að nýja gosinu frá áningastaðnum en hann gefur gestum tækifæri á að sjá hraun frá þremur gosum sem runnið hafa yfir veginn og minjar um vegaframkvæmdir efir hvern atburð.
Lokunarpóstur á Suðurstrandarvegi - Opið að Fagradalsfjalli
Lokunarpóstur á Suðurstrandarvegi hafa einnig verið fjarlægði og þaðan er því einnig opið inn í Grindavík. Mikilvægt er að hafa í huga að ekki er aðgengilegt að ganga að nýja gosinu frá Fagradalsfjalli.
Mikilvægt er að hafa í huga mögulega gasmengun á svæðinu og kanna aðstæður áður en haldið er af stað inn á svæðið. Vindaspár fyrir svæðið má finna inn á vef Veðurstofunnar.
Lokunarpóstur á Nesvegi - Aðgengi að Gunnuhver og Brimkatli
Lokunarpóstur á Nesvegi hefur jafnframt verið fjarlægður. Nú er því opið að öllum helstu áningarstöðum á Reykjanesskaganum, þar með talið Brú milli heimsálfa, Reykjanesvita, Gunnuhver og Brimkatli frá Grindavík.
Eldosin í Sundhnúksgígum hafa engin áhrif á opnanir og lokanir á norðan og norðvestan verðum skaganum. Þannig er opið alla daga að Stafnesvita, Hvalsnesi, Garðskaga, áningastöðum í Reykjanesbæ, Vogum og Vatnsleysuströnd. Þá er einnig opið að Keili, Sogunum, Trölladyngju og Grænudyngju, auk Kleifarvatns.
Ekki ganga að gossvæðinu
Þó að ekki gjósi í dag þá er svæðið mjög varasamt til yfirferðar þar sem aflögun hefur orðið í landslaginu. Það eru engar merktar gönguleiðir að svæðinu, gamla hraunið er úfið og torfarið og hættur geta leynst víða í földum gjótum. Þá er ennþá mikil skjálftavirkni á svæðinu og möguleiki á eldgosi enn fyrir hendi. Gestum sem vilja skoða og sjá gossvæðið er bent á að nýta útsýnisstaði á norðanverðum skaganum, sem sjá má á kortinu hér að neðan. Verið er að vinna að því að setja upp útskot á Grindavíkurvegi þannig að gestir geti með öruggum og einföldum hætti komist nærri nýju hrauni. Sérstök tilkynnig verður send út þegar það verður tilbúið.
Lögreglustjóri Suðurnesja hefur jafnframt gefið út viðvörun við að ganga að gosinu frá Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi vegna mögulegrar hættu á ósprunngnum sprengjum á gömlu æfingasvæði hersins.
Mikilvægt er að hafa í huga að:
- Öruggast er að horfa á gosið í vefmyndavélum t.d. á ruv.is og mbl.is á meðan verið er að meta aðstæður, en einnig má horfa á það frá útsýnisstöðum t.d. frá Reykjanesbæ eða Vogunum. Ekki er opið að gosstöðvunum og því ekki hægt að ganga að þeim.
- Reykjanesbraut er opin fyrir umferð en ekki er ráðlegt fyrir vegfarendur að leggja bílum á vegaxlir. Flug til og frá Keflavíkurflugvelli er á áætlun.
Hlekkir á ítarefni og frekari upplýsingar:
- Veðurstofan: Veðurstofan fylgist vel með þróun mála og uppfærir reglulega vefinn hjá sér með upplýsingum um gosið.
- Utanríkisráðuneytið: Á vef Utanríkisráðuneytisins er að finna algengar spurningar sem gestir hafa verið að spyra að og svör við þeim.
- Vegagerðin: Mikilvægt er að fylgjast vel með lokunum og færð á vegum við þessar aðstæður, því þær geta breyst með litlum fyrirvara.
- Safetravel: Safetravel birtir upplýsingar um öryggi fyrir ferðamenn
- Rúv.is: Rúv flytur uppfærðar fréttir af eldgosinu og einnig á ensku
- Visit Reykjanes: Við birtum á þessari vefsíðu ítarlegri upplýsingar um aðsæður inn á svæðinu, hvar er opið og hvernig æskilegt sé að fara um svæðið.
- Vefmyndavélar af svæðinu: ruv.is - mbl.is - visir.is - livefromiceland.is