Vefsíður Keflavíkurflugvallar og innanlandsflugvalla í endurskoðun - könnun
Isavia, rekstaraðili íslenskra flugvalla, er nú í endurskoðunarfasa varðandi vefsíður fyrirtækisins (Keflavíkurflugvallar og innanlandsflugvalla) - www.kefairport.is og www.isavia.is. Fyrirtækið vinnur nú að þarfagreiningu um þessar mundir og könnun hefur nú verið sett í gangi um hvernig gera má síðurnar betri. Lögð er áhersla á hvernig þær geti stutt betur við ferðaþjónustu á Íslandi og markaðsetningu á nærumhverfi flugvalla.
Það væri því eftirsóknarvert ef lesendur gætu svarað eftirfarandi könnunum. Mikilvæg sjónarmið og þarfir ferðaþjónustu kæmu inn í þessa vinnu og nýjar vefsíður myndu styðja betur við ferðaþjónustuaðila á Íslandi.
Kannanir:
Vefsíða Keflavíkurflugvallar
https://www.surveymonkey.com/r/GDBT6SW
Vefsíða Isavia
https://www.surveymonkey.com/r/7XW6MKH
Með kveðju
Heiðar Örn Arnarson
Vefstjóri / Webmaster
Markaðsdeild / Marketing