Tónleikum Skálmaldar í Hljómahöll frestað
Það hryggir okkur að tilkynna að fresta þarf tónleikum Skálmaldar sem áttu að fara fram laugardaginn 28. mars í Hljómahöll. Ástæðan er óhapp sem söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar, Björgvin Sigurðsson, varð fyrir á vinstri hönd en það kemur í veg fyrir að hann geti leikið með hljómsveitinni. Er þetta í fyrsta sinn sem hljómsveitin neyðist til að fresta tónleikum á ferli sínum og harmar hún það mjög.
Tónleikarnir sem áttu að fara fram laugardaginn 28. mars frestast vegna þessa til föstudagsins 17. apríl kl. 21:00. Miðar sem keyptir voru á tónleika sveitarinnar þann 28. mars gilda á tónleikana þann 17. apríl. Þeir gestir sem vilja fá miða sína endurgreidda geta haft samband við Tix.is á netfangið info@tix.is eða í síma 551 3800.
Rokk og ról,
Skálmöld & Hljómahöll