Suðurnesjamenn sáttir á Mid-Atlantic
03.02.2020
Markaðsstofa Reykjaness tók þátt í Mid-Atlantic ferðakaupstefnunni sem haldin var í 27. sinn um helgina. Kaupstefnan er haldin í Laugardalshöllinni á vegum Icelandair til þess að tengja saman kaupendur og seljendur ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja og auka ferðamannastraum til Íslands.
Fjölmörg fyrirtæki frá Reykjanesi mættu og kynntu sína starfsemi og en um 240 sýningabásar voru settir upp á sýningunni þar sem hundruðir funda áttu sér stað.