Fara í efni

    Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

    Stjórnun og forysta í ferðaþjónustu

    Opni Háskólinn í Reykjavík í samstarfi við SAF bjóða uppá nám fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu þar sem áherslan er á hagnýta þekkingu og færni.

    Opni Háskólinn í Reykjavík í samstarfi við SAF bjóða uppá nám fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu þar sem áherslan er á hagnýta þekkingu og færni. Leitast verður við að efla og styrkja stjórnendur í ferðaþjónustu við að takast á við áskoranir í sínu starfsumhverfi og nýta til þess sannreyndar leiðir. Kennt er í fjórum lotum og eru kennsluaðferðir í senn fjölbreyttar og hagnýtar. Auk fyrirlestra spila umræður og verkefnavinna stórt hlutverk. Notast er við raunhæf verkefni í náminu. 

    Námslotur:
    • Sala og þjónusta
    • Netmarkaðssetning
    • Mannauðsmál og árstíðasveiflur
    • Verkefna- og viðburðastjórnun
    Leiðbeinendur:
    • Lára Óskarsdóttir, ACC stjórnendamarkþjálfi
    • Ari Steinarsson, framkvæmdastjóri Reykjavík Sailors
    • Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu og stundakennari við HR
    • Hulda Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Viðskiptaráðs Íslands

    Hefst: 13. október 2016
    Lengd: 24 klst.
    Verð: 143.000 kr.
    Aðilar að SAF fá 10% afslátt.

    Athygli er vakin á því að áhugasömum gefst einnig kostur á að sækja stakar lotur innan námslínunnar. Verð hverrar lotu er kr. 43.000.-

    Nánari upplýsingar: Lýdía Huld Grímsdóttir, verkefnastjóri hjá Opna háskólanum í HR. lydiahuld@ru.is

    opnihaskolinn.is