RÚV sýnir Soð á Reykjanesi
02.09.2019
Matreiðsluþátturinn Soð verður á skjá allra landsmanna í vetur en fyrirhugað er að sýna þættina á RÚV með haustinu. Keflvíkingurinn Kristinn Guðmundsson er hugmyndasmiður og þáttastjórnandi Soð en hann tilkynnti um samstarfið við RÚV á Instagram um helgina.
Kristinn fékk styrk hjá Uppbyggingasjóði Suðurnesja í fyrra til þess að mynda sex þætti á Reykjanesi þar sem hann flakkar og kokkar í náttúru svæðisins. Þeir þættir verða nú fyrir augum Íslendinga á RÚV. Kristinn kveðst mjög kátur með þessa lendingu en þættirnir eiga að vera aðgengilegir á öllum miðlum RÚV þegar þeir fara í loftið.