Óábyrgur fréttaflutningur af sundferð í Brimkatli
Markaðsstofa Reykjaness fordæmir fréttaflutning Stöðvar 2 þar sem sýnt er frá sundferð tveggja manna í Brimkatli rétt utan Grindavíkur. Afar varasamt getur verið að baða sig í sjónum á þessum stað og er alls ekki mælst til að svo sé gert við neinar kringumstæður. Öldurnar við Brimketil geta verið ófyrirsjáanlegar eins sem sjávarstraumar eru þar sérstaklega sterkir í köldu vatninu.
Við gefið tilefni er rétt að ítreka að sundferðir við útfall Reykjanesvirkjunar eru sérstaklega varasamar og ekki mælt með að baða sig þar.
Ef áhugi er fyrir sjósundi eða náttúrusundi á Reykjanesi er rétt að benda á Garðskaga eða Kleifarvatn fyrir þá sem eru vanir köldum böðum. Mælt er með því að fara aldrei einsamall að synda í köldu vatni. Mikilvægt er að kynna sér sjávarföll og hitastig sjávar áður en lagt er af stað. Almenna reglan um viðveru sé sú að tíminn sem menn megi vera ofan í sjónum sé u.þ.b. tvær mínútur fyrir hverja gráðu.