Kynningarfundur um Vegvísi ferðaþjónustunnar
Vegvísir ferðaþjónustunnar verður kynntur í Hljómahöll mánudaginn 16. nóvember kl. 20.
04.11.2015
Kynning á nýjum Vegvísi ferðaþjónustunnar er fyrirhugaður á Reykjanesi mánudaginn 16. nóvember n.k.
Fundurinn fer fram í Hljómahöll í Reykjanesbæ kl. 20, þar sem fulltrúar SAF og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins munu kynna vegvísinn.
Frekari upplýsingar um Vegvísi ferðaþjónustunnar má finna á www.ferdamalastefna.is
Við hvetjum alla ferðaþjónustuaðila og aðra hagsmunaaðila til að mæta og fá svör við þeim spurningum sem brenna á.