FRÆÐSLA Í FYRIRTÆKJUM Á ENSKU, ÍSLENSKU OG PÓLSKU
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar stendur fyrir kynningarfundi um þjálfun í gestrisni þriðjudaginn 15. maí, kl. 14:00 – 15:00 í Kviku, Húsi atvinnulífsins.
14.05.2018
Kynningarfundur Hæfniseturs ferðaþjónustunnar á Þjálfun í gestrisni verður þriðjudaginn 15. maí, kl. 14:00 – 15:00 í Kviku, Húsi atvinnulífsins. Allir velkomnir.
Þjálfun í gestrisni er efni ætlað til þjálfunar og fræðslu á vinnustað. Fræðsluefnið byggir á raundæmum en það eru fjölbreyttar sögur af atburðarás sem átt hefur sér stað við ákveðnar aðstæður. Efnið skiptist í fjóra flokka: Móttaka og aðbúnaður, veitingar, þrif og umgengni og bílaleiga. Í hverjum starfaflokki eru tíu raundæmi og verkefni.
Sjá nánari dagskrá kynningarfundar hér.
Skráning á kynningarfundinn fer fram á heimasíðu Hæfnisetursins eða beint á skráningarform hér.