Fjölmenni á frábærum íbúafundi í Vogum
20.02.2019
Hann var vel sóttur íbúafundurinn um ferðamál fór fram í Vogum í gærkvöldi. Þar mættu fulltrúar frá Markaðsstofu Reykjaness og Reykjanes Unesco Global Geopark og kynntu starfsemi sína fyrir bæjarbúum. Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri tók einnig til máls á fundinum en hann talaði um mikla möguleika sveitafélagsins í náinni framtíð, sér í lagi hvað varðar staðsetningu Voga en búist er við talsverðri íbúafjölgun og miklum uppgangi í bænum á næstu misserum. Gestir fundarins tóku virkan þátt í spjalli í lok erinda og sköpuðust líflegar umræður.
Ferðamál eru heimafólki greinilega hugleikin því sjá mátti á fundinum að fólk úr öðrum sveitafélögum á Suðurnesjum gerði sér ferð í Vogana til þess að kynna sér málin og leggja orð í belg.
Samskonar fundir fara fram í Grindavík og Reykjanesbæ í dag en upplýsingar um þá má nálgast hér.
Fundinum var streymt á vef Voga TV en hann má nálgast í heild sinni með því að smella hér.