Veittu þínu starfsfólki viðeigandi þjálfun
Hlutverk Hæfniseturs ferðaþjónustunnar er
- að starfa á forsendum ferðaþjónustunnar til að auka hæfni starfsfólks og þar með auka gæði, fagmennsku, starfsánægju og arðsemi greinarinnar
- að greina fræðsluþarfir, móta leiðir, auka samvinnu um fræðslu og koma henni á framfæri til fræðsluaðila og fyrirtækja
- að fá fræðsluaðila til að standa fyrir mælanlegri og árangursmiðaðri fræðslu í samræmi við þarfir greinarinnar
VILTU ÞJÁLFA STARFSFÓLKIÐ OG MÆLA ÁRANGUR?
Tæki til þess finnurðu á heimasíðu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar www.hæfni.is
Efnið, bæði þjálfunar- og kennsluefnið og árangursmælikvarðarnir er ókeypis og nota má það að vild.
ÞJÁLFUN Í GESTRISNI
Þjálfun í gestrisni er efni ætlað til þjálfunar og fræðslu á vinnustað. Starfsmaður í fyrirtækinu getur haldið utan um þjálfunina í samstarfi við vinnuveitanda eða fengið utanaðkomandi fræðsluaðila í verkið. Efnið byggir á fjölbreyttum sögum, stuttum eða löngum, af atburðarás sem átt hefur sér stað við ákveðnar aðstæður. Þjálfunarefnið miðast við fjóra starfaflokka sem eru:
- Móttaka og aðbúnaður
- Veitingar
- Þrif og umgengni
- Bílaleiga
Efnið er aðgengilegt öllum á íslensku, ensku og pólsku og það má nálgast það á heimasíðu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar HÉR
MÆLIKVARÐAR
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar hefur þróað árangursmælikvarða fyrir fyrirtæki í ferðaþjónustu til að meta árangur fræðslu og hvetur fyrirtæki í greininni til að nýta sér þá:
- Ánægjukönnun
- Árangursmælikvarðar
- Hulduheimsókn í hótel
- Hulduheimsókn í þjónustufyrirtæki
- Mat á stöðu fræðslumála
- Starfsþróun skráningarblað
- Skráning ábendinga
Ef óskað er samtals um notkun mælikvarðanna þá hafið samband við starfsmenn Hæfniseturs ferðaþjónustunnar.
Það má nálgast árangursmælikvarðana á heimasíðu Hæfniseturs ferðaþjónustunnar HÉR
RÁÐGJÖF OG AÐSTOÐ
Hæfnisetur ferðaþjónustunnar er ávallt tilbúið að koma í heimsókn til fyrirtækja með ráðgjöf og aðstoð varðandi fræðslu og þjálfun starfsmanna. Ef óskað er eftir heimsókn þá vinsamlegast sendið póst á haefni@haefni.is