Uppbygging áfangastaða í Reykjanes Geopark
Reykjanes Unesco Global Geopark fer fyrir uppbyggingu áfangastaða á Reykjanesi í samstarfi við landeigendur og sveitarfélög á svæðinu.
Helstu framkvæmdir sem unnið hefur veirð að á þessu ári eru bílastæði við Reykjanesvita og Brimketil auk palla við síðarnefnda staðinn og lagfæring vegstæðis að Gunnuhver. Töluverð vinna hefur farið fram við undirbúning þessara framkvæmda enda margir aðilar sem koma að þeim.
Framkvæmdunum á þessum svæðum er skipt í tvo áfanga. Annars vegar var leitað tilboða í jarðvegsvinnu við bílastæðin og lagfæringu á veginum. Hins vegar er leitað tilboða í framkvæmdir við pallana. Á næstu vikum gætu því orðið truflanir á umferð um þessa staði vegna framkvæmda. Sendar verða út tilkynningar þegar framkvæmdir fara af stað.
Þá verða kynntar hugmyndir um þjónustuhús við Reykjanesvita á næstu vikum. Sú framkvæmd og reksturinn þar verður í höndum einkaaðila.
Meðfylgjandi teikning frá Landmótun sem sýnir hvernig bílastæðin við Reykjanesvita eru hugsuð. Í ár verður unnið í fyrsta áfanga. Rétt er að taka fram að ekki er um endanlega teikningu að ræða og gæti hún tekið einhverjum breytingum, t.d. hvað varðar tengingar við göngustíga o.fl.
Framkvæmdirnar eru fjármagnaðar með styrk úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða, frá HS Orku og Bláa Lóninu. Auk þess leggur framkvæmdasjóður Reykjanes Geopark til mótframlag en í hann greiða allir aðilar að geoparkinum.