Stefnumarkandi stjórnunaráætlanir - kynningarfundir haustið 2016
Erindi og kynningar af fundunum eru nú aðgengilegar á vef Ferðamálastofu.
21.10.2016
Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa héldu 14 kynningarfundi um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana haustið 2016. Á fundunum kynntu Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu og þau Anna Katrín Einarsdóttir og Óskar Jósefsson frá Stjórnstöð ferðamála verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem breski ráðgjafinn Tom Buncle fór ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn í framtíðarskipulag og þróun svæða. Nánari upplýsingar um stefnumarkandi stjórnunaráætlanir í PDF-skjali
Efni frá fundunum er nú aðgengilegt á vef Ferðamálastofu.