Reykjanesbær auglýsir eftir rekstraraðila skautasvells
Leitað er að metnaðarfullum og framsæknum aðila til að taka að sér rekstur skautasvellsins frá 1. desember 2021 til 1. mars 2022 í samstarfi við Reykjanesbæ.
Rekstraraðili mun bera ábyrgð á daglegum rekstri svellsins. Hann annast rekstur og mönnun á svellinu, sér um bókanir og skautaleigu og hefur umsjón með daglegu viðhaldi, umhirðu og eftirliti svellsins í samstarfi við Reykjanesbæ.
Leitað er að ábyrgum aðila með reynslu af rekstri sem hefur brennandi áhuga á verkefninu og hugmyndir að útfærslu þess.
Rekstraraðili hefur tekjur af aðgangseyri og skautaleigu auk þess sem möguleiki er á að selja auglýsingar á umgjörð/girðingu svellsins.
Um tilraunaverkefni er að ræða með möguleika á framlengingu samnings.
Umsóknarfrestur er til kl. 12:00 þann 15. nóvember 2021 og skal umsóknum skilað í tölvupósti, merkt “Rekstur skautasvells” á netfangið sulan@reykjanesbaer.is
Reykjanesbær áskilur sér rétt til að hefja viðræður við þá aðila sem sækja um eða hafna öllum umsóknum.
Umsókn skal fylgja:
- Nafn og kennitala rekstraraðila
- Upplýsingar um fyrri reynslu af rekstri
- Hugmyndir um fyrirkomulag og framkvæmd á rekstri skautasvellsins
Nánari upplýsingar veitir Guðlaug María Lewis, menningarfulltrúi í síma 4216700 eða í gegnum ofangreint netfang.