Námskeið um virðisaukaskatt í ferðaþjónustu
KPMG býður ferðaþjónustuaðilum upp á námskeið í virðisaukaskatti í ferðaþjónustu
02.10.2015
Ef þú ert með fyrirtæki í ferðaþjónustu þá ert þú að fara í vaskinn strax í janúar 2016!
Á námskeiðinu kynnir KPMG virðisaukaskattsumhverfi ferðaþjónustunnar þar sem kafað verður ofan í helstu reglur um virðisaukaskatt. Gerð verður grein fyrir breytingum sem gera þarf til að uppfylla lagaskilyrði og þeim áhrifum sem þær munu hafa á fyrirtæki í ferðaþjónustu. Farið verður yfir atriði eins og:
- Hvaða þjónusta verður virðisaukaskattsskyld.
- Hvernig ber að haga uppbyggingu og skipulagi bókhalds í virðisaukaskatti.
- Heimildir til nýtingar innskatts af rekstrarkostnaði; hvaða rekstrarkostnað er heimilt að innskatta og hvaða ekki?
- Reglur um mögulegar endurgreiðslur virðisaukaskatts vegna fjárfestinga fyrir 1. janúar 2016.
- Kröfur um form og innihald útgefinna reikninga og hvernig ber að gera grein fyrir sölu á þjónustu í mismunandi virðisaukaskattsþrepum á útgefnum reikningum.
Kennarar eru þaulreyndir sérfræðingar í virðisaukaskatti.
Fyrstu námskeiðin verða haldin í húsnæði KPMG í Borgartúni 27, Reykjavík:
- Mánudaginn 5. október frá kl. 9-12
- Þriðjudaginn 6. október frá kl. 13-16.
- Skráning fyrir námskeiðin í Reykjavík fer fram á vef KPMG.
Fyrirhugað er að halda námskeið í Reykjanesbæ þann 19. október.
Námskeiðin eru öllum opin og námskeiðsgjald er 12.500 kr.
Skráning og allar nánari upplýsingar má nálgast hjá Lilju Dögg Karlsdóttur, lkarlsdottir@kpmg.is