Námskeið fyrir starfsfólk í upplýsingaveitu til ferðamanna
Opnað hefur verið fyrir skráningu á námskeið fyrir starfsfólk upplýsingamiðstöðva og aðra þá sem starfa við upplýsingagjöf til ferðamanna. Það verður haldið í Endurmenntun Háskóla Íslands (Náman) 2. júní frá 13:00 – 17:00 og sent út á Netinu. Við viljum ítreka að námskeiðið er einnig opið starfsmönnum gististaða, bensínstöðva, sundlauga o.s.frv.
Ferðamálastofa greiðir ferðakostnað starfsfólks opinberra upplýsingamiðstöðva á næsta fundarstað en boðið er upp á fjarfundi um allt land fyrir þá sem þess óska.
Dagskráin er eftirfarandi:
12:45 Skráning og afhending gagna
13:00 Mikilvægi vandaðrar upplýsingaveitu
– Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir verkefnastjóri hjá Ferðamálastofu. - landshlutasíður
13:15 Gagnagrunnur Ferðamálastofu -www.ferdalag.is
– Halldór Arinbjarnarson upplýsingastjóri Ferðamálastofu.
13:35 Notkun korta í upplýsingagjöf
– Þórdís Guðrún Arthúrsdóttir ráðgjafi.
13:55 Vakinn, gæða og umhverfiskerfi íslenskrar ferðaþjónustu
– Erla Sigurðardóttir sérfræðingur hjá Ferðamálastofu
14:15 Kaffi/Te
14:30 Húmor og gleði í vinnunni
– Edda Björgvinsdóttir leikkona.
15:33 Aukin upplýsingagjöf til ferðamanna
- Jónas Guðmundsson verkefnisstjóri slysavarna ferðamanna hjá Landsbjörgu.
16:30 Námskeiðslok
Skráningu lýkur 22. maí og verða fundarstaðir auglýstir stuttu eftir það.
Fólk er hvatt til að kynna sér fræðsluritið Upplýsingamiðstöðvar – leiðbeiningar fyrir starfsfólk.
Allar frekari upplýsingar varðandi efni námskeiðsins og málefni upplýsingamiðstöðva má nálgast hjá Hrafnhildi Ýr Víglundsdóttur hrafnhildur@ferdamalastofa.is.