Mannamót 2017
Markaðsstofur landshlutanna setja upp vinnufundinn Mannamót í Reykjavík fyrir samstarfsfyrirtæki sín 19. janúar kl. 12.00 – 17.00 í flugskýli flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli.
Mannmót markaðsstofanna er hugsað sem kynningarvettvangur ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna landsbyggðarfyrirtæki fyrir ferðaþjónustuaðilum sem staðsettir eru á Höfuðborgarsvæðinu. Ísland hefur mikið upp á að bjóða og Mannamót hjálpa til við að mynda og efla tengsl innan ferðaþjónustunnar. Gestum á Mannamótum gefst kostur á kynna sér það sem mismundi landshlutar eru að bjóða uppá með áherslu á vetrarferðamennsku.
Skráning og gjald: Þátttökugjald fyrir hvert fyrirtæki er kr. 15.000. Einungis samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta tekið þátt sem sýnendur í Mannamóti 2017. Skráningu á Mannamót lýkur 12. janúar 2017. Upplýsingar um Mannamót og skráningu má finna á heimasíðu Mannamóta, www.markadsstofur.is eða hjá Þuríði hjá Markaðsstofu Reykjaness í síma 899 3696 eða thura@visitreykjanes.is. Frekari upplýsingar um skráningu í Markaðsstofu Reykjaness má finna hér.