Lokað að gosstöðvum í dag
Í morgun var tekin ákvörðun um að hafa áfram lokað að gosstöðvunum í dag, 15. júlí.
Það er gert til að tryggja öryggi ferðamanna og viðbragðsaðila. Mikil mengun er á svæðinu og þá ekki síst vegna gróðurelda. Lögreglustjóri getur því miður ekki tryggt öryggi þeirra sem inn á svæðið fara við þessar aðstæður.
Hvasst er í dag við gosstöðvarnar og vindátt óhagstæð göngufólki. Reykur frá gróðureldum og gosi liggur yfir gönguleið að gosinu.
Verið er að bæta mælingar á mengun á gossvæðinu en því verki er ekki lokið. Unnið er áfram að lagfæringum á svæðinu.
Ákvörðun lögreglustjóra um lokun verður endurskoðuð á fundi viðbragsaðila í fyrramálið, 16. júlí, kl. 9.