Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kynningarfundur á Reykjanesi um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana

Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða til 14 kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP) um landið.
Kynningarfundir um allt land
Kynningarfundir um allt land

Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða til 14 kynningarfunda um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP) um landið.

Á fundunum mun Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir frá Ferðamálastofu og þau Anna Katrín Einarsdóttir og Óskar Jósefsson frá Stjórnstöð ferðamála kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem breski ráðgjafinn Tom Buncle mun fara ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn í framtíðarskipulag og þróun svæða. Hagaðilar DMP verkefna eru breiður hópur s.s. sveitarfélög, markaðsstofur, atvinnuþróunarfélög, ferðaþjónar, ferðaklasar, upplýsingamiðstöðvar, aðrir þjónustuaðilar, öryggis- og viðbragðsaðilar, íbúar o.fl.

Nánari upplýsingar í PDF-skjali

Kynningarfundurinn verður haldinn í Duushúsum, fimmtudaginn 13. október kl. 9.30.

 

Hlekkur á skráningarblað er hér að neðan. Vinsamlegast skráið þátttöku í það minnsta 3 virkum dögum fyrir fundinn. Áætlað er að fundurinn standi í 2-3 tíma. Skráðir þátttakendur fá sendar ítarlegri upplýsingar um dagskrá hvers fundar og nánari fundarstað. 

Skráning á kynningarfundi um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana