Gasmengun við gossvæðið og nýtt hættumatskort
Mikið gas er að mælast við gosstöðvarnar og er því mikilvægt að fylgjast með gas- og veðurspá fyrir svæðið.
10.07.2023
Töluvert gas er að mælast í gosinu við Litla-Hrút og því mikilvægt að kanna aðstæður áður en haldið er af stað í göngu inn á svæðið.
Hér má finna upplýsingar frá Veðurstofunni eins og staðan er í dag: https://www.vedur.is/eldfjoll/eldgos-a-reykjanesi/gasmengun/
Nýtt kort sem sýnir mat á hættusvæðinu tengt eldgosinu hefur verið gefið út og ætti fólk ekki að vera innan þess svæðis.
Safetravel birtir tilkynningar reglulega á sinni síðu um opnun og lokun leiða, og eins má fylgjast með tilkynningum frá Almannavörnum og Lögreglustjóranum á Suðurnesjum.