Fjarnámskeið í stafrænni markaðssetningu
Ferðamálastofa býður í samvinnu við Markaðsstofu Reykjaness upp á námskeið í stafrænni markaðssetningu sem ætlað er litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Farið verður í helstu atriði stafrænnar þróunnar og markaðssetningar ferðaþjónustufyrirtækja, svo sem bókunarsíður (Booking og Expedia t.d.), Google, samfélagsmiðla og heimasíður, leitarvélabestun og gerð markaðsáætlana.
2ja daga námskeið: 31. mars og 14. apríl.
Staðsetning: Fjarnámskeið - kennt í gegnum fjarfundabúnað.
Kennari: Inga Rós Antoníusdóttir, verkefnastjóri stafrænnar þróunnar hjá Ferðamálastofu
Tími: Kennt kl. 09-12 & 12:30-14
Verð: 10.000
Skráning: Inga Rós Antoníusdóttir - ingaros@ferdamalastofa.is
Áhersla á lítil og meðalstór fyrirtæki.
• Hámark 10-12 þátttakendur
• Inga Rós Antoníusdóttir veitir allar frekari upplýsingar ingaros@ferdamalastofa.is