Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ratsjáin 2025 - skráning hafin

Ratsjáin er fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu sem vilja efla getu sína og auka samkeppnishæfni í átt að sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu.

Ratsjáin fer aftur af stað í upphafi árs 2025.

Ratsjáin er verkfæri ætlaði stjórnendum í ferðaþjónstu og tengdum greinum sem vilja auka hæfni sína og getu í rekstri. Grunnstef og hugmyndafræði Ratsjánnar gengur útá að efla samkeppnishæfni og auka verðmætasköpun í íslenskri ferðaþjónustu. Íslenski ferðaklasinn leiðir verkefnið og er framkvæmdaaðili.

Ratsjáin býður upp á spennandi tækifæri fyrir stjórnendur í ferðaþjónustu sem vilja þróa hæfni sína enn frekar. Með blöndu af vinnustofum á netinu og sérstöku vinnusvæði fá þátttakendur bæði fræðslu og tækifæri til jafningjarýni, ásamt leiðsögn frá sérfræðingum í greininni. 

Markmið verkefnisins: 

Ratsjáin 2025 leggur áherslu á að efla sjálfbærni í íslenskri ferðaþjónustu í samræmi við stefnu stjórnvalda um að gera Ísland að leiðandi landi í sjálfbærri þróun. Með Ratsjánni gefst fyrirtækjum einstakt tækifæri til að byggja upp þekkingu og hæfni sem skilar sér í aukinni verðmætasköpun og sterkari rekstri.

Helstu dagsetningar:
  • Kynningarfundur: 9. desember 2024
  • Umsóknarfrestur: 17. janúar 2025
  • Kynningarfundur (Kick-off): 15. janúar 2025 í Reykjavík á Ferðaþjónustuvikunni
  • Verkefnið hefst formlega: 28. janúar 2025
  • Lokaviðburður: 3. apríl 2025 á Akureyri
Hvað bíður þátttakenda?
  • Fimm lotur með áherslu á sjálfbærni og nærandi ferðaþjónustu.
  • Aðgangur að sérstöku vinnusvæði á netinu þar sem þátttakendur fá fræðslu og taka þátt í verkefnum.
  • Vinnustofur á netinu þar sem unnið er með jafningjarýni og umræður í hópum.
  • Aðgangur að leiðsögn og stuðningi frá sérfræðingum í ferðaþjónustu.
Verð og stuðningur:

Þátttökugjald er aðeins 15.000 krónur á fyrirtæki, og hægt er að nýta starfsmenntasjóði til að mæta kostnaði.

Hvernig skrái ég mig?

Það er einfalt að skrá sig! Smelltu á umsóknarformið hér til að fylla út umsóknina og tryggja þátttöku fyrir 17. janúar 2025.

Ekki missa af þessu tækifæri til að taka þátt í Ratsjánni 2025 og vera hluti af framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu!

Frekari upplýsingar má finna inn á vef Íslenska ferðaklasans.

Komdu með í ferðalag framtíðarinnar í ferðaþjónustu – Taktu þátt í Ratsjánni 2025!