Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Snjöll ferðaþjónusta – Ný tækifæri með stafrænum lausnum og gervigreind

Hvernig byggjum við snjallari ferðaþjónustu með stafrænni tækni? Hvað þurfa fyrirtæki að vita til að hefja stafræna vegferð, hver er ávinningurinn af að nýta sér stafræna tækni og gervigreind og hvað er eiginlega að gerast í þeirri þróun sem skiptir ferðaþjónustuna máli?

Þessum og fleiri spurningum verður leitast við að svara með góðum hópi gesta á næsta Menntamorgni ferðaþjónustunnar sem haldinn verður þriðjudaginn 18.febrúar frá kl 11:00-12:00. Menntamorgnar eru í boði Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka Ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna og eru öllum opnir í beinu streymi á Facebook.

Dagskráin er eftirfarandi:

Býr þitt fyrirtæki yfir stafrænni færni?“ Ólína Laxdal, sérfræðingur hjá Hæfnisetri ferðaþjónustunnar.

Eyðum meiri tíma í tæknina til að spara okkur tíma.“ Ástþór Þórhallsson, Deildarstjóri/Hótelsvið GODO.

Gervigreind og hugbúnaður sem hugsarHvað er í gangi og af hverju skiptir það máli?“ Brynjólfur Borgar Jónsson, stofnandi og framkvæmdastjóri DataLab.

Persónuleg, skilvirkari og snjallari þjónusta með gervigreind.“ Spurt og svarað með Nordic Visitor um innleiðingu „Ara“ Sigfús Steingrímsson framkvæmdastjóri og Hafdís Þóra Hafþórsdóttir vöruþróunarstjóri hjá Nordic Visitor.

Fundarstjóri er Ragnhildur Sveinbjarnardóttir framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands.

Ef þig langar að vita að fræðast um þetta spennandi málefni, skráðu þig á viðburðinn hér.