Blue Car Rental hlaut vottun Vakans
Nýverið bættist bílaleigan Blue Car Rental úr Reykjanesbæ í hóp öflugra ferðaþjónustufyrirtækja sem eru með vottun Vakans.
Blue Car Rental ehf. var stofnað árið 2010. Fyrirtækið hefur stækkað jafnt og þétt frá stofnun með sístækkandi bílaflota og fjölgun starfsmanna. Í dag er Blue Car Rental í hópi stærstu bílaleiga landsins og hefur yfir að ráða mjög nýlegum bílaflota. Covid-19 faraldurinn hefur að sjálfsögðu sett strik í reikninginn og fyrirtækið þurft að endurskipuleggja sig og fækka starfsfólki. Ætlun fyrirtækisins til framtíðar er þó að halda áfram að vaxa og dafna enda markmið Blue Car Rental að verða fremst í flokki bílaleiga á Íslandi.
Gæða- og umhverfismál hafa verið eitt af forgangsmálum fyrirtækisins undanfarin ár og það ætlar sér enn lengra í þeim efnum á næstunni en sett hafa verið markmið um grænt bókhald og grænni innkaup á bílaflota. Þá hefur fyrirtækið unnið ötullega að öryggismálum og veitir viðskiptavinum örugga og góða þjónustu.
„Við erum því afar stolt af því að hafa hlotið gæða- og umhverfisvottun Vakans. Vottunin er staðfesting á því sem við erum að gera vel og í leiðinni hvati til að viðhalda vottuninni og gera enn betur. Það er metnaður og drifkraftur innan fyrirtækisins að halda ávallt gæða-, öryggis- og umhverfismálum eins og best verður á kosið, bæði gagnvart viðskiptavininum og starfsfólki okkar.“
Frétt af vef Vakans
Áður hafa Suðurnesjafyrirtækin Bus4U, Bláa Lónið og Dive.is hlotið þessa glæsilegu vottun í ferðaþjónustu.