Aukin virkni í Gunnuhver
Undan farna daga hefur verið aukin virkni í Gunnuhver.
15.09.2014
Undanfarna daga hefur orðið vart við aukna virkni í Gunnuhver.
Öðrum útsýnispallinum var lokað um tíma þar sem heit gufan fór yfir pallinn en þeirri lokun var aflétt um leið og í ljós kom að engin hætta var á ferðum.
Ástæða breytinganna á svæðinu og þessarar breyttu virkni á Gunnuhver má rekja til hækkunar á vatnsyfirborði svæðisins.