Átak til atvinnusköpunar
Á markað með snjallt nýsköpunarverkefni?
28.03.2017
Á markað með snjallt nýsköpunarverkefni?
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja.
Markmið verkefnisins:
- Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
- Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja
Sérstök áhersla er lögð á:
- Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf
- Ný verkefni í ferðamálum á sviði þjónustu, upplifunar og afþreyingar og geta stuðlað að því að dreifa ferðamönnum jafnar um landið
Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á vef nmi.is.
Beðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið: hildur@nmi.is
Umsóknarfrestur er til kl. 12.00 á hádegi þann 18. apríl 2017