Stærsti golfviðburður ársins, Íslandsmótið í höggleik, er haldinn á Hólmsvelli í Leirunni í Garði. Tuttugu konur og á annað hundrað karlar munu berjast um eftirsóttasta titilinn í golfinu í fjóra daga. Fyrstu keppendur hófu keppni í býtið fimmtudaginn 21. júlí. Allir eru velkomnir í Leiruna til að fylgjast með og er enginn aðgangseyrir, veitingasala á staðnum og stemmningin góð. Eins og kunnugt er þá er frægasta hola landsins við 3. brautina í Bergvík í Leiru.
Nafn golfvallar: | Holufjöldi: | Par: |
Hólmsvöllur í Leiru | 18 |
72 |