Brúin milli heimsálfa
Athugið: Vegna aukinnar jarðskjálftavirkni á Reykjanesskaganum hafa myndast eða opnast sprungur á nokkrum stöðum á svæðinu, meðal annars við Brú milli heimsálfa. Við hvetjum gesti til að sýna aðgát og virða merkingar á svæðinu. Það er sérstaklega mikilvægt að halda sig á merktum gönguleiðum og stígum, og forðast að ganga of nálægt jarðrimum eða sprungum sem gætu hafa myndast nýverið.
Táknræn brú á Reykjanesi á plötuskilum milli Evrópu og Ameríku.
Samkvæmt jarðfræðikenningum þá þrýstast Evrasíu- og Norður- Ameríkuflekarnir hvor frá öðrum á Reykjanesi. Plötuskilin afmarkast af gosreinum, gjám og gígaröðum sem liggja frá Reykjanesi og norðaustur um land. Segja má að Reykjaneshryggurinn (Mið-Atlantshafshryggurinn) "gangi" á land á Reykjanesi en með honum liggja skil þessara tveggja fleka. Ísland skiptist þannig milli tveggja jarðskorpufleka. Austurhluti landsins tilheyrir svonefndum Evrasíufleka og vesturhlutinn svonefndum Norður-Ameríkufleka. Skilin milli flekanna birtast okkur ýmist sem opnar sprungur og gjár eða sem sem gígaraðir.
Árið 2002 var sett upp brú á milli "plötuskilanna" upp af Sandvík á Reykjanesi þar sem gestum gefst kostur á að upplifa það að ganga á milli heimsálfa (jarðfræðilega séð). Með þessu geta gestir fræðst um plötuskil jarðarinnar og þá sérstaklega Evrasíu- og Norður-Ameríkuflekanna.
Gott bílastastæði er við áfangastaðinn og frá því eru um 200 metra malbikuð gönguleið að brúnni sjálfri. Af brúnni er hægt að ganga niður í sandinn í gjánni og undir búna.
Hægt er að fá viðurkenningarskjal þess efnis að viðkomandi "hafi gengið á milli heimsálfa" gegn vægu gjaldi á Byggðasafninu á Garðskaga og í Duushúsum í Reykjanesbæ.