Upplýsingar um verð
Aðgangur ókeypis
Í árslok verða 50 ár liðin frá stofnun Hitaveitu Suðurnesja, forvera HS Orku. Af því tilefni býður HS Orka íbúum Reykjanesbæjar og öllum gestum til afmælissögusýningar í Gryfjunni í Duus safnahúsum. Sýningin er framlag HS Orku til Ljósanætur í ár.
Á sýningunni, sem hönnuð er í samstarfi við Gagarín, er dregin upp mynd af einstakri frumkvöðlahugsun og framsýni, sem fylgt hafa fyrirtækinu í hálfa öld.