Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bubbi - Þorláksmessutónleikar

7. desember kl. 20:00-23:00

Upplýsingar um verð

8990

Þorláksmessutónleikaröð Bubba Morthens er ein allra langlífasta tónleikahefð í aðdraganda jóla og eru ófáir sem geta ekki hugsað sér aðventuna án þeirra. Tón­leik­arn­ir eru merki­leg­ir fyr­ir þær sak­ir að þetta verður í 40. sinn sem Bubbi stend­ur fyr­ir Þorláksmessutónleikum.

 
Fyrstu Þorláksmessutónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg árið 1985 eða fyrir 39 árum. Þótt staðsetning tónleikana hafi breyst í gegnum tíðina má alltaf stóla á það að Bubbi mæti með gítarinn og perlar sín þekktustu lög á kvöldsins festi og rýnir í samtímann af sinni einstöku snilld.
 
Þorláksmessutónleikarnir verða á eftirtöldum stöðum á eftirfarandi dögum:
5. desember - Hotel Selfoss
7. desember - Hljómahöll Reykjanesbæ
11. desember - Lindakirkja Kópavogi
13. desember - Hof Akureyri
19. desember - Bíóhöllin Akranesi
23. desember - Eldborg Reykjavík

GPS punktar

N63° 59' 23.614" W22° 33' 1.548"

Staðsetning

Hjallavegur 2