Höskuldarvellir
Grasslétta í hrauninu vestur af Trölladyngju og Grænudyngju á Reykjanesskaga. Þangað liggur farvegur frá læk sem kemur úr Soginu sunnan Trölladyngju. Mun hann renna niður á vellina í leysingum og hefur myndað þá með framburði sínum. Höskuldarvellir munu vera stærsta samfellda graslendi í Gullbringusýslu, um 100ha. Tilvalið er að hefja göngu á Keili af bílastæðinu við Höskuldarvelli.