Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Handbók um uppbyggingu ferðamannastaða fyrir sveitarfélög

Ný handbók um uppbyggingu ferðamannastaða fyrir sveitarfélög

Markaðsstofa Suðurlands í samráði við Ferðamálastofu og Markaðsstofur landshlutanna vann handbók sem á að auðvelda sveitarfélögum í stefnumótun, ákvörðunum og aðgerðum við uppbyggingu ferðamannastaða.

Sveitarfélög koma oft að þróun, leyfisveitingum og framkvæmdum ferðamannastaða. Stundum leikur vafi á atriðum varðandi ábyrgð, rekstur og framtíðarsýn um staðina og þá hefur þótt vanta forsendur og verkferla við ákvarðanatöku. Í handbókinni er leitast við að aðstoða sveitarfélög í að meta hvert hlutverk þeirra er í uppbyggingu áfangastaða, hver hagur þeirra er af ferðamannastöðum og til hvaða þátta þarf að líta í allri ákvarðanatöku.

Handbókin byggir á samtölum við sveitarfélög og stofnanir um allt land þar sem skoðaðar voru helstu orsakir vandamála og hvaða aðgerðir leiddu til jákvæðrar reynslu. Á milli kafla má finna dæmisögur af stöðum þar sem uppbygging þykir hafa gengið vel.

Ýmis góð rit hafa verið gefin út um ólíka þætti sem lúta að uppbyggingu ferðamannastaða. Í 10.kafla má finna tengla á helstu gögn sem nýtast á ólíkum stigum verkefna.

Handbókin er eingöngu gefin út á rafrænu formi. Hún verður endurskoðuð og uppfærð þegar reynsla er komin á hana og ábendingar má senda til Markaðsstofu Suðurlands.