Eldgos hafið að nýju í Sundhnjúksgígum
Í kvöld 16. mars hófst eldgos að nýju við milli Hagafells og Stóra Skógfells, á svipuðum slóðum og þegar gaus 8. febrúar s.l.
Um er að ræða sjöunda eldgosið á rétt innan við þremur árum, en fyrst gaus í Geldingadölum í Fagradalsfjalli 19. mars 2021.
Viðbragð:
Almannavarnir og viðbragðsaðilar hafa virkjað sína öryggisferla og sérfræðingar Veðurstofunnar og háskólasamfélagsins meta aðstæður og uppfæra um stöðu mála reglulega. Verið er að meta aðstæður og munu frekari aðgengisupplýsingar um svæðið, stærð gossins, umfang og staðsetning, verða uppfærðar þegar þær liggja fyrir.
Aðgengi að gosstöðvunum:
- Meðan verið er að meta aðstæður hefur því verið settir lokunarpóstar við Hafnir (veg nr. 44), Grindavíkurveg (nr. 43) og við afleggjarann að Krísuvík á Suðurstrandarvegi (nr. 427).
- Þó svo að eldgos séu stórkostlegt sjónarspil, þá eru þau hættulegur atburður í náttúrunni og nauðsynlegt að vegfarendur og gestir sýni ábyrgð, fari um svæðið með varkárni og fylgi fyrirmælum yfirvalda um lokanir og viðbragð.
- Vegfarendur eru beðnir um að stöðva ekki bifreiðar sínar á Reykjanesbraut (veg nr. 41). Hægt er að sjá eldgosið til dæmis frá Ásbrú og Patterson. Hægt er að fylgjast nánar með aðgengi og veglokunum á umferdin.is
- Á kortinu hér fyrir neðan má finna mögulega útsýnisstaði fyrir utan lokunarpósta til að skoða eldgosið úr öruggri fjarlægð.
Til að skoða kortið betur, færðu músina yfir það eða notaður fingurnar til að færa kortið til, stækka kortið eða minnka.
Mikilvægt er að hafa í huga að:
- Öruggast er að horfa á gosið í vefmyndavélum t.d. á ruv.is og mbl.is á meðan verið er að meta aðstæður, en einnig má horfa á það frá útsýnisstöðum t.d. frá Reykjanesbæ eða Vogunum. Ekki er opið að gosstöðvunum og því ekki hægt að ganga að þeim.
- Reykjanesbraut er opin fyrir umferð en ekki er ráðlegt fyrir vegfarendur að leggja bílum á vegaxlir. Flug til og frá Keflavíkurflugvelli er á áætlun.
Hlekkir á ítarefni og frekari upplýsingar:
- Veðurstofan: Veðurstofan fylgist vel með þróun mála og uppfærir reglulega vefinn hjá sér með upplýsingum um gosið.
- Utanríkisráðuneytið: Á vef Utanríkisráðuneytisins er að finna algengar spurningar sem gestir hafa verið að spyra að og svör við þeim.
- Vegagerðin: Mikilvægt er að fylgjast vel með lokunum og færð á vegum við þessar aðstæður, því þær geta breyst með litlum fyrirvara.
- Safetravel: Safetravel birtir upplýsingar um öryggi fyrir ferðamenn
- Rúv.is: Rúv flytur uppfærðar fréttir af eldgosinu og einnig á ensku
- Visit Reykjanes: Við birtum á þessari vefsíðu ítarlegri upplýsingar um aðsæður inn á svæðinu, hvar er opið og hvernig æskilegt sé að fara um svæðið.
- Vefmyndavélar af svæðinu: ruv.is - mbl.is - visir.is - livefromiceland.is