Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bölvun og blessun að vera nálægt flugvellinum

Kristján Pétur Kristjánsson hótelstjóri Hótel Konvin og Þuríður Aradóttir Braun voru fulltrúar Reykj…
Kristján Pétur Kristjánsson hótelstjóri Hótel Konvin og Þuríður Aradóttir Braun voru fulltrúar Reykjaness

Advania stóð fyrir beinni útsendingu frá Mannamótum sem fóru fram Í Kórnum á dögunum. Þar voru teknir tali forstöðumenn markaðsstofa landshlutanna ásamt fulltrúum frá hverju landsvæði. Þau Kristján Pétur Kristjánsson hótelstjóri Hótel Konvin og Þuríður Aradóttir Braun forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness voru fulltrúar Reykjaness og fóru um víðan völl hvað varðar ferðaþjónustu á Reykjanesi.

Kristján kom m.a. inn á þær áskoranir og tækifæri sem felast í nálægðinni við Keflavíkurflugvöll. 

„Það er bölvun og blessun að vera nálægt flugvellinum og það hefur verið vandamál okkar þessara þjónustaðila og fyrirtækja sem vinna á þessu svæði að vera svona nálægt. Á síðustu árum eru að skapast ný tækifæri og við erum heppin með það að vera með fjölsóttasta ferðamannastað á Íslandi í Bláa Lóninu, en hann hefur kannski stolið senunni. Það eru þó núna að byggjast upp tækifæri í kringum gosin sem hafa verið þannig að við sjáum helling tækifæri. Okkur langar að vera fyrsta eða síðasta stoppið, það eru tækifæri og áskoranir.“

Eins báru öryggis og upplýsingamál í kringum eldsumbrotin á Reykjanesi á góða. Ýmislegt fleira var rætt eins og sjá má í eftirfarandi myndskeiði.

 

Reykjanes: Þuríður Aradóttir Braun og Kristján Pétur Kristjánsson