Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Fundur um móttöku skemmtiferðaskipa á Reykjanesi

Kynningarfundur og samtal hagsmunaaðila um móttöku skemmtiferðaskipa á Reykjanesi.

Athugið uppfærðan fundartíma!

Miðvikudaginn 27. nóvember bjóða Reykjaneshafnir og Grindavíkurhöfn í samstarfi við Markaðssofu Reykjaness hagsmunaaðilum til kynningarfundar og samtals um móttöku skemmtiferðaskipa á Reykjanesi. Fundurinn verður haldinn í fundarsal Courtyard by Marriott kl. 9:00-10.30.

Á fundinum verður farið yfir komu Azamara síðast liðið sumar, stöðu skipakoma næsta sumar bæði hjá Reykjaneshöfnum og Grindavíkurhöfn og samtal um frekari þróun á verkefnum tengt þessum málaflokki í landshlutanum.

Dagskrá: 

  • Kynning á verkefnum tengt skemmtiferðaskipum á Reykjanesi. Þuríður Aradóttir Braun, forstöðukona Markaðsstofu Reykjaness
  • Kynning á verkefnum Reykjaneshafnar. Halldór K. Hermannsson, hafnarstjóri og sviðsstjóri atvinnu- og hafnarmála hjá Reykjanesbæ
  • Kynning á stöðu verkefna hjá Grindavíkurhöfn, Sigurður Kristmundsson, hafnarstjóri Grindavíkurhafnar
  • Kynning frá Iceland Travel sem þjónustaði skipið Azamara síðast liðið sumar. Hildur Karen Ragnarsdóttir, expedition manager hjá Iceland Travel
  • Umræður

Við hlökkum til að sjá ykkur og þróa þennan málaflokk áfram í sátt við samfélagið.

Vinsamlegast skráðu þátttöku hér.

Tengt efni: